Akmennt

Upplýsingavefur skóladeildar Akureyrarbæjar

Nýjustu fréttir

Leikskólar á faraldsfæti

Nokkrir leikskólar eru þessa dagana að leggja upp í náms og kynnisferðir erlendis. Bak við þessar ferðir liggur langur og strangur undirbúningur og nú er komið að því að njóta afrakstursins.  Iðavöllur fer til vinabæjarins Lathi í Finnlandi. Sunnuból ætlar að heimsækja Cambridge í Englandi  Nautatjörn er að fara til Oslo og Lundarsel ætlar svo að heimsækja Cambridge í maí.  Við á skóladeildinni óskum þeim góðrar ferðar og vonum að ferðin verði þeim gangleg og lærdómsrík.

Nýr Skóla-akur

Nýr Skóla-akur er kominn út. Meðal efnis í blaðinu er innritun í leikskóla Akureyrarbæjar, þróunarverkefni á leikskólanum Pálmholti og ýmislegt fleira.
Lesa Skóla-akur

Viðurkenning skólanefndar árið 2012. Tilnefningar

Skólanefnd hefur frá árinu 2010 veitt einstaklingum og/eða stofnunum sem skarað hafa fram úr í skólastarfi viðurkenningar. Markmiðið er að vekja sérstaka athygli á því sem vel er gert og hvetja þá sem fyrir valinu verða til þess að halda áfram því góða starfi sem þeir eru að vinna og jafnvel gera enn betur. Viðurkenning er einnig staðfesting á að viðkomandi skóli/kennari/nemandi er fyrirmynd annarra á því sviði sem viðurkenning nær til. Nú er komið að því að leita eftir tilnefningum. Allir sem áhuga hafa geta tilnefnt. Frestur til að skila inn tilnefningum er er til 3.maí 2012

Nýr Skóla-akur

Nýr Skóla-akur er kominn út. Meðal efnis í blaðinu er nýtt efni frá Námsgagnastofnun, fagráð vegna eineltismála í grunnskólum, heimsóknir á Amtbókasafnið og ýmislegt fleira.  Sjá Skóla-akur



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn