Akureyrarbær skóladeild

Upplýsingavefur skóladeildar Akureyrarbæjar

Velkomin(n) á vef Skóladeildar Akureyrarbæjar

Á þessari vefsíðu má finna fréttir úr skólalífinu í Akureyrarbæ og gagnlegar upplýsingar fyrir alla þá sem að skólunum koma.

Nýjustu fréttir

Nýir starfsmenn við skóladeildina

Í dag mánudaginn 23. apríl hófu tveir nýir starfsmenn störf við skóladeildina. Þessir starfsmenn sjá um afmörkuð tímabundin verkefni.
Friðný Hrönn Helgadóttir er verkefnisstjóri fyrir það verkefni að skoða rannsóknir og fræðilegt efni um tengsl næringar við heilsu barna. Í því felst að skoða hvort rannsóknir bendi til þess að næring hafi áhrif á ýmis vandkvæði sem börn geta glímt við s.s. ADHD, einhverfu, hegðunarörðugleika, námsörðugleika o.s.frv.
Sólveig Jónasdóttir er verkefnisstjóri fyrir starfshóp sem mun stýra vinnu við að skipuleggja og koma á fót íþrótta- og tómstundaskóla á Akureyri. Markmiðið er að koma tómstundum barna inn í frístundatímann svo foreldrar og börn ljúki sínu skipulagða starfi á svipuðum tíma á daginn.


Leikskólar á faraldsfæti

Nokkrir leikskólar eru þessa dagana að leggja upp í náms og kynnisferðir erlendis. Bak við þessar ferðir liggur langur og strangur undirbúningur og nú er komið að því að njóta afrakstursins.  Iðavöllur fer til vinabæjarins Lathi í Finnlandi. Sunnuból ætlar að heimsækja Cambridge í Englandi  Nautatjörn er að fara til Oslo og Lundarsel ætlar svo að heimsækja Cambridge í maí.  Við á skóladeildinni óskum þeim góðrar ferðar og vonum að ferðin verði þeim gangleg og lærdómsrík.

Nýr Skóla-akur

Nýr Skóla-akur er kominn út. Meðal efnis í blaðinu er innritun í leikskóla Akureyrarbæjar, þróunarverkefni á leikskólanum Pálmholti og ýmislegt fleira.
Lesa Skóla-akur

Viðurkenning skólanefndar árið 2012. Tilnefningar

Skólanefnd hefur frá árinu 2010 veitt einstaklingum og/eða stofnunum sem skarað hafa fram úr í skólastarfi viðurkenningar. Markmiðið er að vekja sérstaka athygli á því sem vel er gert og hvetja þá sem fyrir valinu verða til þess að halda áfram því góða starfi sem þeir eru að vinna og jafnvel gera enn betur. Viðurkenning er einnig staðfesting á að viðkomandi skóli/kennari/nemandi er fyrirmynd annarra á því sviði sem viðurkenning nær til. Nú er komið að því að leita eftir tilnefningum. Allir sem áhuga hafa geta tilnefnt. Frestur til að skila inn tilnefningum er er til 3.maí 2012

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn